Aðalvalmynd

Atburðarteljari

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

DJAMM PJAMM

27. mars 2007 klukkan 15:28

Þetta er nú alveg hræðilegt...það eru örugglega allir hættir að nenna að kíkja hérna inn til að athuga hvort maður hafi geta gefir svo sem eins og fimm mínutur til þess að blogga...en ég ætla að reyna aftur...

Það er bara brjálað að gera hjá mér eins og vanalega...vinnan er númer 123 og svo er það heimilið og boltinn...

Það var haldið innanhúsmót 17 mars og það var geðveikt gaman...ég var í C-liðinu..hehe en við stóðuim okkur bara vonum framar og meirað segja stóðum okkur betur heldur en B liðið;) hlakka svo til í sumar þegar að við byrjum að spila úti...fyrsti leikurinn okkar er 21 mai eða eitthvað um það leytið...það mun vera á Egilsstöðum...;) hlakka mikið til....

En svona næst á Dagskrá er útskrift...haldið að mín sé ekki að útskrifars 19 mai...kellingin búin að ná sér í eina hvíta húfu... og núna kitlar mig svo mikið að fara í Háskóla...er alveg að missa mig veit ekkert hvað ég á að gera...langar svo að reyna að komast inn í tannlækninn...sem er by the way sex ára nám...langar geðveikt...efast um að kallinn samþykki það...

en svo er ég að fara á Hornafjörð umhvítasunnuhelgina...Það er verið að fara að ferma Alex, stjúpson birnu systir...ætlum að skella okkur í helgar ferð á fjörðinn;)

BALL BALL BALL....mér fannst einvher vera að hvísla því að mér að Greifarnir verði að spila á Hótelinu um páskana er eitthvað til í því...???? en allavegana hlakka til að fá yklkur heimu um páskana gellur...Tinna segist ætla að djamma eins og geðveiklingur....hvað segið þið á Jelly stórveldið að hafa klúbb um páskana og DJAMMA....endilega kommentið um það ef að þið lesið þetta þar að segja;) hehe

en allavegana heyrumst við allavegana;)

Betra er seint en aldrei....

28. janúar 2007 klukkan 18:15
hehh ég ætlaði að byrja upp á nýtt og vera agalega dugleg að blogga...en neeeei það er ekki að takast...það er svo brjálað að gera hjá mér þessa dagana að ég hef gjörsamlega ekki haft neinn tíma í að blogga;)
Á Laugardaginn fórum við á fótboltamót á laugum og enduðummeð silfur...áttum samt alveg að geta fengið gullið og bikarinn en það gekk ekki alveg eins og skildi..Það var samt geðveikt gaman...þetta er svona batta bolti þar sem að boltinn fer aldrei út af nema honum sé skotið yfir battana...Við áttum bara góða leiki og fórum með tvö lið mitt hitt liðið endaði með bronsið;)
Jæja út í allt aðra sálma...ég er að klikkast mig langar svo til útlanda er búin að liggja á netinu núna síðustu eina og hálfa vikuna að leita mér að ferð...er með tvær í sigtinu...erum að spá í að fara öll fjölskyldan saman...mútta gamla er að spá í að splæsa á familíuna út....djöfull hlakka ég til..ég hef ekki farið til sólarstrandar síðan að ég fermdist....ætla sko að verða  brún brún brún;) erum að spá i að fara á Costa, eða Rhodos á Grikklandi ...en svo kemur Tenerife líka sterklega til greyna...einhverjar hugmyndir??? hvert eigum við að fara...hvar er best að vera;)????
Annars er bara allt gott að frétta af okkur...1 árs afmæli um næstu helgi..guð hvað tímin er fljótur að líða...kallinn er búinn að fá einn afmælispakka...afi hans Geiri er náttlega snar bilaður eins og þið vitið flest og hann keypti handa honum rafmagns mótorhjól...svoltið stórt enþá...en agalegt trillitæki...með útvarpi og segulbandstæki...hehe hann er agalega ánægður með það....og veit sko alveg hver á það;) svo er hann alveg að fara að labba búinn að taka eitt til tvö skref...þetta fer allt að koma hjá honum...hann er orðinn frekar líkur móður sinni í skapi...loksins fæ ég eitthvað frá honum;)
jæja ætla að fara að segja þetta gott í bili ...ætla að drífa mig á fótboltaæfingi...;)

NÝTT UPPHAF!!!!

08. janúar 2007 klukkan 05:05
GLeðileg Nýtt ár allir saman;) hef ákveðið að reyna við mig á nýju vefsvæði;) markmiðið er að reyna að vera duglegri að blogga árið 2007;)

Ég er byrjuð að vinna á fullu og það er meira en nóg að gera!!! Mér finnst voða skrítið að vera aðeins að vinna núna og þurfa ekkert að hugsa um skóla og læra ogþess háttar...en það er bara voða næs;) Fannar Ingi varð 11mánað í fyrra dag...þetta líður svo hratt...það eru bara fjórar vikur í eins árs afmælið mér finnst þetta svoskrítið...mér finnst einms og ég hafi átt hann  í gær.. Það sem er framundan hjá mér er bara að vinna og vinna...langar samt geðveikt að komast suður á útsölur...reikna með að fara í skírn til erlu minnar einhverntímann í Febrúar...Svo er ég byrjuð í boltanum aftur og ætla að vera í vetur...reyna að hreyfa sig eitthvað...komnar með nýjann þjálfara sem er bara rosalega gaman...skemmtilegar æfingar og hann leggur mikið upp úr tækni...vonandi kemur þetta allt saman hjá manni;)
 En jæja ætla bara að hafa þetta stutt blogg í þetta skiptið...ætla að  koma mér í háttinn..

Venlig Hilsen Kiddý;)


Fannar með Hárkolluna á áramótunum;)

Innskráningar kubbur

Klukkan

Könnun

Á að fara í sólina í sumar???